Velkomin
Geggjaðir leikir
17.10.2007 18:33:46 / Katrín

Kannski kominn tími á smá blogg :S

Get nú ekki sagst vera búin að vera dúleg að blogga 8| Hef einfaldlega ekki nennt því, hef ekkert haft að segja en núna ætla ég að koma með svona "skemmtilegt" punktablogg svo þið getið nú séð hvað ég hef verið að eyða síðustu vikum mínum í :)

  • Sætasta frænka mín fæddist 7. september og fæ ég aldrei leið af henni. Sem betur fer fengum við að hafa litlu heima fyrstu dagana því þau voru ekki búin að fá íbúðina sína en því miður eru þau flutt en ég er tíður droppara gestari hjá þeim :) Gæti knúsað hana í klessu :*
  • En þess á milli þegar ég er ekki með litlu þá er ég í vinnunni bara sem er alltaf jafn fínt bara :)  
  • Svo um daginn keypti ég mér nýja tölvu þar sem hin talvan mín var alveg að gefa upp öndina, fékk mér bleika Dell og er sátt með hana en reyndar botna ekkert í þessu windows kerfi, þarf að gefa mér tíma að læra á hana. Aldrei að vita nema maður fari þá kannski að blogga meira.
  • Svo hafa Sunna, Björk, Björk og Unnur alveg bjargað lífi mínu hérna. Við erum dúlegar að drepa tíman og gera eitthvað saman, reyndar er nú Björk frænka týnd hvernig ætli standi á því ?:) En ég, Sunna, Björk Hólm, Heiður, Unnur og Rakel hittumst heima á laugardaginn og fórum saman á djammið, þetta var bara mjög skemmtilegt kvöld og gekk bara ágætlega fyrir sér ;)
  • Svo er Fjóla skráð inn í dag, 17. september. Hringdi nú í hana áðan og þegar hún svaraði mér ekki hélt ég að hún væri komin upp á fæðingardeildina bara og allt að gerast en svo hringdi hún í mig stuttu seinna og var bara í bankanum. Er orðin svi spennt !!
  • Svo fær litla prinsessan nafn á laugardaginn !! Get ekki beðið hlakka svo til að vita hvaða fallega nafn hún fær. Ég ætlaði mér að fara á Airwaves þessa helgi en ég gat ekki annað en beilað á því fyrir hana ltilu, er búin að selja miðan og svona og gæti ekki verið sáttari með ákvörðunina :)
  • Rakel gella er bara í þessum skrifuðu orðum á leiðinni til Akureyrar !! Er svo spennt að sjá hana og ge'ðveikt að hún komi á miðvikudegi þá allavega getur maður aðeins fengið smá tíma með henni :)

En held að þetta sé komið nóg í bili

Verð samt að segja ykkur frá mjög findnu atviki sem ég lennti í um daginn, smá grín af sjálfri mér ....

En allavega þá var ég heima um daginn og það var dyrað og ég fór til dyra og þá stóð maður fyrir utan sem var að selja flugelda fyrir heyrnalausa. Hann benti mér á að lesa miða sem stóð utan á pakkanum og ég las hann og ætlaði svo að segja honum að ég væri ekki með peninga til að geta keypt pakkan en þá ældist út úr mér "sorry but I don´t have no money" !! hahaha Ég hélt ég mundi deyja úr hlátri þegar ég fattaði hvað ég var að segja ég hugsaði bara ekki eitt augnablik og leið eins og ég væri stödd úti með Rakel því þá var alltaf eitthvað fólk að koma til okkar og biðja um pening fyrir þessu og hinu og þá svaraði maður bara á sem einfaldastan hátt :) maður getur stundum verið smá öfugsnúinn ...

en jæja læt þetta gott heita - Ef þið vitið um far suður má alltaf endilega láta mig vita þar sem ég lofaði stelpunum að koma alltaf aðra hverja helgi en það hefur heldur betur klikkað þ ar sem greinilegt virðist vera að enginn Akureyringur fer suður :/

kv Katrín Ósk 


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 22:33:35 / Katrín

07.09.07

Litla prinsessan er fædd í þennan heim :* Fæddist 05:00 aðfaranótt föstudags. Við systurnar vorum ekki lengi að hendast upp á sjúkrahús og fá að sjá litla gullmolann :)

Ég með yndislegustu stelpuna :* Hún er svo gullfalleg get gjörsamlega starað á hana allan daginn :)
Fallegust :*
Er að vinna í að setja inn myndir þetta kemur allt saman hægt og rólega
kv í bili frá stoltustu frænkunni ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 17:14:22 / Katrín

uppgjör sumarsins

Þetta er klárlega vel nýttasta sumar sem ég hef upplifað og eitt af þeim bestu :) Reyndar stendur enn þá síðasta sumar upp úr þegar við Rakel vorum úti en lífið er ekki svo gott og peningarnir ekki það miklir að ég hefði getað lifað aftur svoleðis sældarsumri :)

  • Við vínkonurnar fórum saman í eina suðurferð fyrstu helgina í júní ! Byrjuðum að hita okkur upp fyrir haustið ;) 
  • Sunna sæta kláraði loksins MA 17. júní og var því fagnað með trompi og prakt :)
  • Helgina eftir útskriftina fórum við fimmmenningarnir í stórgóða útilegu sem var lengi búið að bíða eftir !!
  • HRÓASKELDA var fyrsta helgin í júlí ! Geðveik upplifun og er farin að hugsa um að fara aftur á næsta ári ef gengið er game ???
  • Ég, Rakel og Linda fórum á Lunga sem var algjör snilld, kom manni skemmtilega á óvart ;) Förum klárlega aftur  á næsta ári :)
  • Svo kom Versló sem þýðir að Sigrún kom heim og var að sjálfsögðu mikil fagnaðarlæti og fjör :)
  • Fiskihátíðin var helgina eftir versló og létum við okkur ekki vanta, Sunna elskan kom heim og skelltí sér með okkur :)
  • Helgina eftir fiskidaginn keyrðum við Rakel saman suður með búslóðina hennar Rakelar (aðalega fötin, bíllinn varð fullur :/) og hittum þar Sigrúnu sem leyfði okkur að gista í nýju íbúðinni sinni !! Sunna gella kom svo á laugardeginum til að geta tekið eitt tjútt með okkur :) Mér fannst svo hrillilega gaman að ég ákvað að vera alveg fram á fimmtudag !
  • og er ég svo að fara aftur suður núna að hitta elskurnar mínar !

Við semsagt nýttum hverja einustu helgi sem við vorum ekki að vinna og gerðum eitthvað skemmtilegt og svona eiga sumrin að vera ! Hlakka strax til næsta sumars ;)

Ég náði svo að sníkja far hjá Óda frænda núna um helgina, ég bara einfaldlega nenni ekki að hanga hérna, hlakka ekkert smá til að hitta stelpurnar :) Sunna reyndar kemst ekki með núna en við ætlum aftur 14. svo þá hittumst við allar aftur :)

Ég er annas byrjuð á Krógabóli sem er æðislegt. Þessi litlu krútt eru svo yndisleg. Er samt í afleysingjastarfi þannig ég fæ líklega að vera á öllum deildunum sem er bara gaman því þá kinnist maður öllum börnunum sem er alls ekki verra :) Skrítið samt að vera ekkert að fara í skóla, maður er búinn að vera í skóla síðustu 15 árin svo núna allt í einu þarf ég ekkert að læra neitt þegar ég kem heim eftir vinnu ! Reyndar sakna ég þess nú pínu að geta ekki farið að lesa og glósa og svona en ég mun sko klárlega ekki sakna þess þegar próftíðin byrjar :Þ

En já þetta er orðið ágætt hjá mér... Ekki NEMA 6 dagar í að litla barnið er skráð í að koma í heiminn !!! Vá get ekki beðið ! Litla krílið á sko strax eftir að vera besti vinur minn, Rannveig og Vilberg eiga eftir að þurfa að henda mér út ég á eftir að vera svo uppáþrengjandi :) Ætla allavega klárlega að vera besta frænkan ;)

Er búin að setja inn myndir frá útilegunni og LungA, hinar fara svo að detta inn fljótlega

Ein af okkur gellunum

en kv Katrín Ósk


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 19:49:59 / Katrín

Roskilde mynrirnar komnar inn

Loksins búin að henda þessum geggjuðum myndum inn, langar helst að fara aftur í tíman og vera í drullunni og stemmingunni :) En albúin eru fimm og þetta er allt saman mjög vel merkt neðst á síðunni ;)

Nenni samt ekkert að blogga neitt er að far aí hjóltúr með Pé og Rakel

Lunga var samt geggjuð !!! Algjör snilld, koma myndir frá henni von bráðar :)

kv Katrín


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 23:29:24 / Katrín

Hróaskeldusagan :)

Betra seint en aldrei ;) 

Ég get bara lýst Hróaskeldu með tveim orðum geggjað og drulla :) Þetta var svo mikil snilld !!! GEðveikt að fá að upplifa drulluskeldu líka, þessi hátíð var akkúrat andstæðan við hátíðina í fyrra ef maður miðar við veðrið en skemmtunin var alveg jafn mikil reyndar aðeins meira vesen sem fylgdi drullunni en við gerðum bara gott úr því ;)

En semsagt að þá mættum við pígurnar á flugvöllinn á Akureyri klukkan 8 á mánudagsmorgni alveg að pissa á okkur úr spenningi og biðum við spenntar eftir að komast í BEINA flugið okkar frá Akureyri en neinei gæfan fylgdi okkur alveg hreint og þurfti endilega að vera þoka akkúrat yfir Akureyrarflugvellinum svo það átti að tékka á flugi aftur klukkan 2 svo við fórum bara heim í pizzupartý og mættum sprækar klukkan hálf tvö upp á völl og þá var okkur sagt að við þyrftum að taka rútu til Eigilstaðar og fara þangað. Dálítill pirringur sem kom upp þá því fyrst við þurftum að taka rútu þangað og svo fljúga að þá vorum við búnar að missa af einum degi á Roskilde en þetta reddaðist nú allt saman samt og við lenntum í Köben um eitt um nóttin og Kata og Björk voru svo góðar að bjóða okkur gistingu svo þetta var allt í himnalagi :)

Mættar á völlinn :)
Á leiðinni með rútunni til Eigilstaðar :)
   Þegar við komum svo á svæðið daginn eftir fengum við blíðarmóttökur frá Sunnu og strákunum ásamt reyndar allri drullunni en við vorum ekki lengi að kippa stígvelunum upp og koma okkur í drullugírinn :) Tjaldið okkar var risið á góðum stað á N-svæðinu og það var geggjuðstemming þegar við komum enda sól og læti enn þá. Svo var bara djammað þri og mið því þá voru tónleikarnir ekki byrjaðir og tókum við stelpurnar gott djamm á þessum dögum hehe ;) Svo byrjaði að rigna á miðvikudagsnóttu og þá byrjaði ballið því rigningin stoppaði ekki fyrr en fimmtudagsnótt og allt svæðið var komið á flot ásamt tjaldinu okkar :whut:
Við Pé að undirbúa fína tjaldið okkar, settum dúk og allt undir en það reyndar virkaði ekki lengi
Rigningin komin :)
    Bjartmar elskan bjargaði okkur alveg og bauð okkur gistingu hjá sér í Köben svo við yfirgáfum blauta tjaldið okkar og ferðuðumst bara alltaf á milli, það gat stundum verið pínu bras en þetta var samt bara gaman :) Við fórum á allveg fullt af tónleikum t.d. The Killers, Björk, Peter Björn and John, Red hot chillipepper, Muse og fleiri þetta eru svona aðal nöfnin sem ég vissi um hehe :)
    Ég er að vinna í að hlaða myndunum inn á netið og svo skelli ég þeim hér á síðuna svo vonandi verða þær komnar inn bara fyrir helgi því ekki mun ég setja þær inn þá því þá erum við að fara á LUNGA. Ákváðum að skella okkur til Seyðisfjarðar og taka gúmmítúttuútileguna :) Verður eflaust snilld enda örugglega með seinustu útilegunum á þessu sumri :cry: Vá hvað tíminn líður hratt bráðum er bara komið haust !!! og stelpurnar farnar suður !!:cry: en það þýðir bara eitt að ég verð eflaust með annan fótinn fyrir sunnan :) ekki leiðilegt það :)
    En jæjæa ætla að hætta þessu þetta er orðið alltof langt og langdregið eflaust vita allir hvernig þessi Hróaskelda var svo ég er ekkert að koma með nein tíðindi núna hehe :) En sjáumst á LUNGA annas bara næst
   Góða Nótt
   Katrín Ósk

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 20:53:34 / Katrín

Ferðasögublogg - 5 dagar í Hróaskeldu !!!!

Jahá best að halda uppteknum hætti og blogga bara einu sinni í mánuði það er voðalega hentugt :) er eitthvað voðalega lítið í tölvunni þessa dagana en samt sem áður ætla ég að eyða smá tíma í gott blogg handa ykkur kæru lesendur :)

En allavega þá skulum við byrja á suðurferðinni en hún var bara ein SNILLD ! Við skemmtum okkur alveg konunglega eins og við gerum alltaf þegar við skellibjöllurnar erum komnar fimm saman ! En við hittum Lindu Björk og djömmuðum af okkur rassinn en eyddum samt smá tíma í að versla, gátum ekki sleppt því fyrst við vorum nú komnar í borgina miklu :) En svo kom bara mjög erfið vinnuvika, maður er svo hrillilega lengi að ná sér eftir svona svefnlitla helgi svo það var ekkert mikið gert allavega ekki sem ég man en svo kom náttlega 17. júní helgin og Sunna litla skvísa útskrifaðist :) Ekkert smá stolt af gellunni og veislan hjá henni ekkert smá kósý og æðisleg og svo um kvöldið fórum við í matinn í höllinni og tókst okkur að borða frá 20-23:30, held ég hafi aldrei verið svona lengi með disk fyrir framan mig en ótrúlegt samt hvað tíminn leið hratt og var þetta bara hið skemmtilegasta borðhald en toppurinn samt á kvöldinu var að sjá krakkana skoppa um bæinn á miðnættinu ! Mér finnst alltaf svo gaman að sjá krakkana, allir alltaf svo glaðir að sjálfsögðu, mér finnst þetta eini bömmerin við að hafa ekki klárað að útskrifast í MA. En þetta var æðislegt.....

Svo um síðustu helgi fórum við stelpurnar í hina langþráðu útilegu sem við erum búnar að skipuleggja að fara fyrir svona tveim mánuðum og byrjuðum við ferð okkar á B'onus, versluðum þar náttlega eins og við værum að fara í tuttudaga ferðaleg í staðinn fyrir tveggja en það er svo sem alltaf í lagi að hafa nógan mat. Við byrjuðum á að gista fyrstu nóttina á Lundi (rétt hjá Ásbyrgi). Við skemmtum okkur mjög vel það kvöld en samt sat einhver þreyta í manni svo það var ekkert tekið rosalega vel á því allavega ekki allir hehe :) En því var bætt upp daginn eftir þegar við vöknuðum í roki og rigningu og ákváðum að flýja um land og fórum á Mývatn sem var mjög sniðug hugmynd því þar var Jónsmessunótt svo við fengum varðeld og allan pakkann :) En svo bara var pakkað saman daginn eftir og við svona misþunnar, held reyndar að Sunna greyið hafi tekið þynnkuna fyrir okkur allar :* fallegt af henni ;)

Vá hef örugglega aldrei bloggað svona mikið þannig það er eins gott að ég fái fáein komment en ég ætla alls ekki að gleyma að minnast á það en hún Sigrún Ingveldur var 21. árs í dag, til hamingju elskan :* og svo yfirgaf Sunna landið í dag og mun ekki stíga fæti inn á það fyrr en í ágúst en sem betur fer hittum við hana þegar við komum út á Hróaskeldu :):) Sem er eftir 5 daga !!!! Ég reikna ekki með því að koma með blogg fyrr en eftir Hróaskeldu en ég get alveg lofað því að það verður mikilfenglegt og ánægjulegt :)

Ein mynd af okkur frænkunum
Skvísurnar Sunna stúdent og Rakel old
og Sigrún sæta afmælisbarn :*

kvkv Katrín Ósk Ómarsdóttir :)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 17:00:17 / Katrín

FARNAR SUÐUR :):)

Sit bara heima hjá Rakel og er að bíða eftir að hún sé búin að vinna og þá erum við allar reddý til að leggja í hann :) Hlakka ekkert smá mikið til !! Sunna er komin suður, fór í gær en hún kemur svo til okkar bara í kvöld þegar við erum komnar :) Ætlum að gista í stúdentaíbúðinni sem systir hennar Katrínar er með svo við höfum smá íbúð fyrir okkur :) en við ætlum svo að bruna á jeppanum hennar Kötu, paddan fær að hvíla í bili en var nú samt spennt að þjótast um á henni á götum Reykjavíkur :) hún fær ekki að gera það oft þessi elska ....

En síðasta helgi var snilld, gerði nú ekkert á föstudaginn því ég þurfti aðeins að vinna í Bónus klukkan 7 daginn eftir svo við horfðum bara á ungfrú ísland og svo fór ég bara að sofa en Rakel fór að vinna svo ég var hálf einmanna í rúminu þessa nóttina en eki bara þessa nótt því hún fór svo austur að keppa í fótbolta laugardaginn og var eina nótt þar en þar sem Arnar læsti mig úti að þá fékk ég að hvíla í sófanum hennar Kötu, góður sófi :) Svo á laugardaginn fórum við á Palla og það var geðveikt gaman, Palli stendur alltaf fyrir sínu en við byrjuðum bara hjá Rakel og vorum bara nokkrar stelpur sem var mjög fínt, ekta stelpupartý, ég held að við h0fum talað oní hvor aðra mest allt kvöldið hehe :)

En Rakel var aðhringja svo ég hef þetta ekki lengra, kem að vörmu spori með glimrandi blogg frá borginni :)

kv Katrín Ósk


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 20:26:49 / Katrín

styttist óðum í suðurferð, útskrift, útileigu og Hróaskeldu !!

Jæja ætla að henda inn nokkrum orðum á meðan ég bíð eftir að Rakel heyri í mér, ætlum að kíkja smá rúnt. En allavega þá er ég bara aðalega búin að vera að vinna og hundleiðileg, nennni yfirleitt ekki að gera neitt eftir vinnu svo ég hef ekki frá miklu að segja nema um vinnuna sem er ekki skemmtilegt umræðuefni :)

En allavega plönuðum við Rakel að fara suður fyrstu helgina í júní og ætlum vi að rífa stelpurnar með okkur. Sunna er reyndar að fara með systur sinni en það er bara hið besta mál hittum þær samt oft en á enn eftir að koma í ljós með Kötu og Sigrúnu. Linda Björk er að koma til Reykjavíkur þessa helgi svo það verður gaman að hitta hana og rifja upp minningar frá Danmörku í fyrra hehe mjög skemmtilegt :) Svo bara er Sunna litla a útskrifast 17. júní. En svo förum við í hina langþráðu útilegu helgina eftir útskriftina. Ákváðum að fara í þessa útilegu fyrir löngu svo það þýðir ekkert að svíkjast undan með hana ! Hún verður og við verðum ! voðalegt eitthvað ..... en við allavega ætlum að fara á Ásbyrgi eða bara eitthvað ekki alveg búnar að negla það en þetta verður svo geðveikt skemmtilegt, höfum alltaf getað skemmt okkur skemmtilega í útilegunum :) En svo er  bara ein helgi eftir útileguna og svo Hróaskelda !!! ÉG er alveg að deyja !! og ég hed bókstaflega ! Ég get ekki hætt að hugsa um þetta þetta verður svo mikil snilld !! Var einmit rétt í þessu að kaupa miðann og þá er bara allt klappað og klárt, þurfum bar aað bíða eftir að 2. júlí renni upp :):)

En já veit að ég er búin að ná öllum prófunum en á eftir samt að fá útúr tveim og svo sótti ég um fjarnám í khí svo aldrei að vita nema maður fari suður hausitð 2008 en læt allt saman vera opið bara :)

En jæja er hætt þessu ætla bara að hringja í Rakel sjálf nenni ekki að bíða :Þ Setti inn myndir síðan við vorum hjá Kötu að djamma, snilldar kvöld :)

þangað til næst

kv KAtrín Ósk


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 17:13:14 / Katrín

Komin í sumarfrí :):)

Jæjá þá er skólinn alveg búinn hjá mér næstum, er búin að vera í allan dag að klára íslenskulokaverkefnið og er ég eiginlega alveg búin þarf að gera aðeins meira núna og svo bara klára ég og skila á morgun :) Fór í lokapróf í Þroskasálfræði í gær og er ég ekki alveg viss með gengi mitt þar 8| Held í vonina um að ég slefi !

En allavega ég er þá komin í langt skólafrí, byrja ekki að vinna fyrr en eftir helgi svo ég get bara notið þess að vera til um helgina :) Kata ætlar að bjóða okkur stelpunum heim til sín á laugardaginn og ætlum við í Sána og borða saman og svona stuð :) Vona bara að það verðir áfram svona gott veður eins og búið er að vera síðustu daga ! Mamma og pabbi eru farin til USA til að fara á einhverja bútasaumssýninga og versla og ég gæti ekki öfundað þau meira !!! Það er víst geggjað gott veður og svona ekki það að maður getur kvartað yfir veðrinu hér 8)

Ómar var í ökuprófinu áðan og að sjálfsögðu náði hann því svo hann verður bara kominn með bílpróf eftir sirka tvær vikur ! Ég ætla að njóta þess í botn að láta hann sendast fyrir mig og skutla mér þar sem hann skuldar mér alveg fjögra ára skutl :)

En þetta er þá bara komið, nenni ekki að skrifa meir, er of upptekin að horfa á Beverly :) En ég ætla að skila sérstaklega kærri kveðju til hennar Sigrúnar Ingveldar ;)

kv Katrín Ósk


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 14:24:22 / Katrín

Komnar með flug á Hróaskeldu og ekki nema 77 dagar :)

Já ákvað að blogga aðeins langt síðan síðast. En það er heilmargt búið að gerast síðan þá. Kata P er loksins komin heim !! Mikið var æðislegt að sjá hana ! Loksins erum við allar hérna á sama stað, það hefur ekki gerst síðan bara áður en við Rakel fórum út !! En það var frábært að fá hana, kom líka svona skemmtilega heim svona surprise, enginn hafði hugmynd um að hún væri að koma ;) Kata kom akkúrat fyrir páska þannig við hittumst allar á páskadag og vorum heima hjá Sunnu og vá hvað það er langt síðan ég hef skemmt mér svona vel !! Þetta var snilldarkvöld ! Sérstaklega þegar við vorum heima hjá Sunnu niðri í drykkjuleiknum hehehe :) algjör snilld !!

En núna er bara alavara lífsins að byrja, bara fimm skóladagar eftir !!! Vá þá er maður búinn með fyrsta árið í Kennaranum ! ekkert smá fljótt að líða ! Ég fer bara í eitt próf sem er 2. maí og svo reyndar þarf ég að skila stóruverkefni 4-11. maí en þetta verður búið áður en ég veit af :) og þá komin í árs frí frá skólanum ákvað loksins að taka mér frí svo ég vonandi verð bara að vinna á leikskóla og safna money :)

En ég, Kata og Rakel keyptum okkur flug loksins til Danmerkur, förum út 2. júlí og komum heim 11. júlí :) Þetta verður algjör snilld !! Eigum bara núna eftir að kaupa miðann en gerum það bara um næstu mánuðumót. Mér hlakkar svo til, er meira að segja farin að dreyma Hróaskeldu á nóttunni :) En þetta verður líka örugglega eina ferðin sem eg fer í sumar svo bara um að gera að njóta sín :)

Komnar MYNDIR frá páskadjamminu, eru neðst í myndir 2007

En þá er þetta held ég bara komið, sorry Ágústa að ég kom ekki í afmælið þitt, þarf að vinna í kvöld en ég trúi vel að þetta eigi eftir að vera frábær veisla :) Til hamingju með daginn :*

kv Katrín


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 18:58:34 / Katrín

Hróaskelda eftir 108 daga !!!

Já þá er það klappað og klárt ! Við erum pottþéttar á Hróaskeldu, er "næstum" búin að kaupa miðann, á reyndar eftir að kaupann en allt annað er ákveðið :) Kata P ætlar með okkur sem er bara snilld !! Og ekki nema 108 dagar ! Finnst það reyndar hræðilega langt en tíminn er svo fljótur að líða alltaf þannig það styttist óðum !!

En annas er svo sem ekkert merkilegt í fréttum frá mér. Arna var spurð að því hvort ég ætti kærasta í Grænumýrinni hahaha :haha: Þá var einhver sem hafði verið búinn að sjá bílinn minn fyrir utan og einu sinni eldsnemma um morguninn en þá var ég bara kúrandi hjá henni Sunnu minni :) Hún er nú reyndar hálfger kærasti minn ;)

En já svo var bara afmæli hjá Adda um helgina, snilldarafmæli !! Við gáfum honum náttúrlega bestu gjöfina en það var hvorki meira né minna en sleypiefni, titrarahringur, draumur, eitthvað sem við keyptum til að styrkja SÁÁ og síðast en ekki síst Alkahólpróf :) Það reyndar virkaði ekki neitt, mælirinn sýndi að hann væri bláedrú en ég efa nú að hann hafi verið það :) En við skemmtum okkur konunglega og svona til að breyta aðeins til þá leyfði ég Sunnu að hvíla sig á mér og gisti hjá Rakel og get ég ekki sagt að við höfum skemmt okkur illa !!:)

gaman að þessu... var loksins að klára eitt ógeðslegt ljóðaverkefni !! Það er bara þvílíkum fargi af manni létt við að vita að þetta sé búið. En á morgun sýni ég gjörninginn minn sem verður eflaust voðalega vandræðilegt :^)

en er búin að reyna að setja inn myndir en það er ekki alveg að virka, skil ekki af hverju ?? en held áfram að reyna ...

En er komin með Dawson æði og ætla að halda áfram að glápa á vin minn

kv Katrín


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 19:14:33 / Katrín

Ekki alveg dauð, bara næstum !

Vá það er liðinn rúmur mánuður síðan ég bloggaði eitthvað hér en ég hef bara ekki gefið mér tíma í það og hef svo sem kannski ekkert merkilegt að segja heldur ....

Skólinn er búin að vera á fullu en mér tókst að "týna" heillri viku og var ég himinsæl þegar ég áttaði mig á því. Það var nefnilega þannig að ég hélt að ég væri að far að skila tveim stórum verkefnum í næstum viku einu gjörningaverkefni sem er 60% og einu ljóðaverkefni sem er 20%. Ég er búin að vera voða að stressa mig á þessu og skil ekki neitt og veit ekki neitt en þá uppgötvaði ég í morgun að það er næsta vika og svo á ég ekki að skila fyrr en í vikunni eftir það :haha::haha: Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var ánægð !!! Alltof gott að græða daga ....

En svo er bara komið að því að sækja um sumarvinnu. Er búin að vera að hugsa um að sækja um á leikskóla, hef alltaf langað til að vinna þar, ég ætla allavega að fá mér vinnu sem ég get verið eitthvað úti, nenni ekki að hanga inni í allt sumar ! En svo er reyndar mikið búið að ganga á huga minn síðasta mánuð og langar mig rosalega að taka mér frí úr skólanum í ár! Ég sé enn svo eftir að hafa ekki tekið mér frí svo mér finnst að ég eigi bara að gera það núna, það liggur ekkert á, en það eru skiptar skoðanir á þessu öllu saman hjá fólkinu í kringum mig svo þetta kemur í ljós....

Svo gerðum við Rakel, Sunna og Björk heiðarlega tilraun til að fara til Mallorca. Vorum þvílíkt spenntar og allt skipulagt og tókum ferð frá og svonna en svo kom einhver skynsemi í  mann og komst þá að því að það var ekki bara hjá mér heldur hjá okkur öllum svo hún virðist vera fokin útum gluggan sú ferð, en takk samt stelpur fyrir góða ferð ;) Við eigum bara eina inni :Þ

Svo er bara Palli næstu helgi og vá hvað mig hlakkar til !! Langt síðan eitthvað almeinilegt hefur verið um að vera svo að  sjálfsögðu ætlum við að sletta úr klaufunum og taka gott djamm, synd samt að það vanti Kelu og Nöfnu en Kela stakk af til Sviðþjóðar og vá hvð ég öfunda hana og Ágústu þær eru örugglega núna bara að renna sér í brekkunum :cry: En heppnar þær samt :haha: Og svo koma Kata og Bippi vonandi heim í næsta mánuði !! Svo þá getum við skipulagt bústaðaferð !!! Hvernig lýst ykkur á það ?? Mer finnst kominn tími á eina slíka !

 En segi þetta gott, mér finnst ég eiga hrós skilið fyrir gott og langt blogg :haha:

Kv Katarína


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 22:23:29 / Katrín

Ísland góða Ísland

núna snúast dagarnir bara um að leikurinn byrji :) Er ekkert smá spennt yfr þessu en verð samt alltaf svo pirruð þegar við töpum og segi þá alltaf að ég ætli aldrei að horfa á svona leik aftur en það breytist samt alltaf, maður verður að hafa trú á sínum mönnum :) Meira að segja þegar þeir kepptu á móti Túnis þá sagði ég við Sunnu að ef við myndum vinna að þá æ tlaði ég að kaupa mér bol þegar ég verð fyrir sunnan og þeim finnst greinilega tími kominn á það þar sem þeir unnu og ég græddi bol hehe :)

En annas hlakka mig bara til að fara suður ! Tinna frænka er að fara að keppa þessa helgi og vonandi keppir hún á laugardeginum því þá get ég horft á hana :) En annas verður þetta örugglega bara djamm og mér finnst það nú ekki leiðilegt :)

En vá hvað veðrið var leiðilegt í nótt !! Ég var að verða vitlaus, alltaf vaknandi og ég reyndi eins og é gat að sofna aftur en tókst ekki, hugsaði mjög til eyrnatappana hennar Örnu hehe en ég sofnaði svo loksins. Þetta var nú ekki eins slæmt hjá mér eins og hjá Örnu, það kom víst vindur upp úr klóstinu hennar haha :) ekki gaman ....

En GLERAUGUN eru fundin !!! Hver gat trúuað því ! Ég var alveg búin að syrgja þau á miðvikudaginn því þá fór ég á seinasta stað sem þau gátu verið sem var í skólanum og þau voru ekki þar svo ég var alveg búin að jarða þau í huganum en neinei ákvað þá Rannveig að þrífa bílinn sinn og kemur færandi henndi með gleraugun mín... þá hafði mér greinilega tekist að gleyma þeim í hanskahólfinu þegar við vorum á einhverju brasi fyrir jólin ! Vá hvað ég var ánægð en samt pirruð hehe en ég sparaði mér helling á þessu og kannski maður fái bara einn bol í viðbót í staðinn :P

en ætla að fara að sofa bara, er farin að sjá hvað það er gott að fara að sofa snemma ... ég er orðin algjört letidýr 8|

Góða Nótt pípúl


» 15 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 22:22:24 / Katrín

Mávahlátur !!??

Á einhver bók sem heitir Mávahlátur ?? Ég þarf að lesa hana í janúar í íslensku og það væri voða ljúft ef einhver ætti hana sem gæti lánað mér hana :)

En allavega þá ligg ég bara upp í rúmi og er að horfa á Desperat Housewife ! Er að reyna að horfa á fyrstu og aðra seríu áður en þriðja byrjar í sjónvarpinu og mér gengur bara nokkuð vel með það :)

En annas var ég svaka dúleg áðan og eldaði fyrir familíuna. Gerði pastað hennar Örnu og mér tókst þetta bara ljómandi vel, allir voða sáttir :) Núna get ég loksins sagst getað eldað :)

Skólinn er að byrja núna, ég var ekki í skólanum á mán og þri svo þetta er stutt vika en þetta mun vera þannig í vetur að ég verð oft bara 3 daga í viku í skólanum :) Ekki er það nú slæmt... ;) og bara svona láta ykkur vita að þá náði ég EVÍ :) Ágætt að vita að maður er allavega ekki neitt eftir á, er bara á sama stað og hinir ....

En jább þetta er komið í dag

Katrín


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 20:17:53 / Katrín

Veit einhver um gleraugun mín !!??

Ég auglýsi hér eftir gleraugunum mínum. Þau eru búin að vera týnd síðan 13. desember eða alavega í kringum hann og þeim er SÁRT saknað ! Það væri voðalega gott ef einhver gæti upplýst mig um hvar þau eru ;)

En allavega fólk Gleðilegt árið !! Ótrúlegt að það sé komið 2007 en tíminn líður alltaf hraðar og hraðar og áður en maður veit af er maður orðinn gamall og allt bara búið ! Þess vegna er ég komin með þá flugu í hausinn fyrst maður er enn ungur að breyta til... Mér langar alveg rosalega suður næsta haust ! Stelpurnar allar eru að huga að fara og mér langar ekki að vera ein eftir hér heima :cry: En ætla samt ekkert að gera neitt í fljótfærni, hef nógan tíma til að hugsa þetta .... Væri samt geggjað að vera bara á görðunum og prófa að búa í borginni í smátíma. Reyndar skrítið að þetta komi úr mínum munni því mér hefur aldrei langað til að búa þar, hef alltaf fundist frekar leiðilegt að vera þarna en svona getur maður breyst :)

En allavega voru áramótin frábær !! Nenni ekki að rifja þau upp núna því það er svo langt liðið síðan þau voru en við stelpurnar skemmtum okkur konunglega :)

;) Reddý í áramótafjörið !
En núna er skólinn bara byrjaður aftur hjá mér. Ég kláraði bæði upptökuprófin um daginn. Náði  hugmyndasögunni en er að bíða eftir að fá útúr eðlisvísindum 8| Er innilega að vona að ég skríði yfir en er samt ekki allveg viss um að ég sé svo heppin ! Tékka á einkunum nokkrum sínnum á dag því ég er svo stressuð :) En það verður þá bara að hafa það....
En ætla að halda áfram að gera þetta verkefni sem ég á að vera gera, fékk mér bara smá pásu :) En ætla samt að reyna að henda inn myndum. Ég er að reyna að setja inn myndir frá interrailinu en ég get ekki sett einn disk inn í tölvuna mína og ég vil hafa þetta allt í réttri röð svo vonandi redda ég því sem fyrst :) En ég er byrjuð að setja myndir frá desember og jólunum og hestaferðinni :) og það er held ég nr 13 og 14 minni mig og 15 og svo eru áramótin nr 16 :) 
kv Katrín

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7